Kæru Vigfúsar
Jæja mínir kæru ferðafélagar og gestir.
Nú fer að líða að 1. sept, dagurinn sem við vorum að hugsa um næstu rafting ferð. Nú þarf ég að fá að vita hverjir ætla. Ef þarf að fara sér ferð með okkur þá verðum við að vera amk 6 stukke. Vinsamlegast stimplið ykkur inn hérna svo ég geti látið Kötju vinkonu mína vita hvernig við ætlum að haga okkar málum.
Því miður hef ég nú þegar fregnir af einum vigfúsi sem kemst ekki með okkur þar sem lögreglan hafði einhver afskipti af aksturslagi vigfúsar og fannst hann aka af full miklum hraða.
Sjáumst og heyrumst mínir kæru félagar
Kolla Vigfús
Svar frá rafting.is
gaman að heyra að þið voruð að skemmta ykkur vel í gær.
En ennþá meira gaman að þið viljið fara í Austari ána næst.
Það eru engar fastar brottför, best er að athuga hvað er á skrá á viðkomandi
tímabil.
Þegar þið eruð duglegt í a safna hóp saman getum við líka sest upp
sérbrottför fyrir ykkur, en þá þurfið þið helst að vera 6 manns eða fleiri.
Verðum í sambandi!
Kær kveðja,
Katja
Jæja Vigfúsar allir saman, hvað segjum við???
NÆSTA FERÐ
AUSTARI JÖKULSÁ BRÁÐLEGA
WWW.RAFTING.IS
DAGSETNINGAR Í BOÐI ERU TD:
30/8, 31/8, 1/9, 2/9
ERU FLEIRI HUGMYNDIR??
HVERJIR HAFA ÁHUGA?
SKRÁNING ER HAFIN!!!
RAFTING
mættum misstundvíslega kl 13:30 í herbúðir ævintýraferða... til að kljást við öldur jökulsár í dag...
metþátttaka var í þessa ferð og voru það 5 stykki sem mættu á vegum vigfúsar...
Heiða aka ferðahandbókin
Kolla aka girðingarvinnan
Elín aka gestur hansen
Ingunn aka beiler
Sandra aka miss laugaskóli
fengum nokkuð smekklega galla sem pössuðu missmekklega sumir með rass niður að hnjám og aðrir girtir eins og starfsmenn elliheimilis hefðu sloppið í brækurnar hjá þeim, fengum að sýna takta í fæðingarhjálp því það að koma sér í gallann er sennilega svipað og að fæðast... það er án gríns ekkert djók að troða sér í gegnum þetta hálsmál á göllunum... sumir þökkuðu margra ára reynslu í sauðburði fyrir að komast í gallann.. aðrir vinna á fæðingardeild og vita hvernig þetta gengur allt fyrir sig og hinir fengu bara aðstoð...
söknuðum x18 skónna sem við fengum síðast en fengum reyndar superhot skó í staðinn sem vigfúsum gekk misvel að komast í ... og ekki má gleyma hjálmunum... sem voru bara töff
við groupuðum okkur í bát með hressu dönsku pari... hóst hóst... hress...hress nöfnið á þeim fóru eitthvað inn um annað og útum hitt ef þau hafa kynnt sig..
fengum guide frá Nepal... aka tengdasonurinn... nafnið hans er ekki alveg á hreinu en sagan segir að það byrji á A. kemur í ljós í næstu ferð...
hann byrjaði nottla á því að kenna okkur hin ýmsu handtök við árina/róuna... og fór þaðan í að læra nöfn og festa vesti... eitthvað fannst honum hann þurfa að festa sérstaklega vel vestið á miss laugaskóla og fræðast um uppruna hennar...
beilerinn sýndi guidinum klærnar og setti upp kryppu þegar greyjið ætlaði að kanna rennilásastatusinn á henni og hröklaðist burtu...
þegar við vorum komnar um borð í fleyjið okkar sem sigldi stolt um jökulsánna, byrjaði fjörið... við völdum að sjálfsögðu tiger leiðina en ekki tjúttlingaleiðina og vildum hafa aðeins aksjón í þessu...danska parið fékk ekkert um þetta að segja og var sett fremst muhahah
já danirnir fengu fremsta hlutann og þar af leiðandi mesta vatnið, svo voru heiða og kolla team, svo ingunn og elín.. og sandra fékk að vera aftast með guidinum...
öflugt róðrarlið þarna á ferðinni... sagan segir að annað eins lið hafi ekki sést á ánni síðan rammstein renntu sér eina ferð niður...
allir stukku fram af klettinum, nema einn, nei það var ekki beilerinn sem beilaði heldur var það girðingarvinnan, sem hafði stokkið oftar en einu sinni síðast þegar hún fór þannig að hún var búin að stökkva inn skipti og átti inni ...
ansi var það nú hressandi að dýfa sér í ánna... en það voru langar sekúndurnar sem liðu áður en maður skaust upp á yfirborðið aftur... og þurfti að synda á fullu í straumnum... en adrenalinflæðið fór í gang við þetta...
kolla og danski gæjinn skutluðu sér út úr bátnum til að fljóta með straumnum... hetjur
við fórum í jafnvægisleikinn ... ingunni var skutlað útbyrðis... en kippt upp í bátinn stuttu síðar...
guidinn henti elínu út í... og ef þúi messar við vigfús, messar vigfús við þig og guidinn fékk flugferð i ánna... og var ekki kippt upp í jafnfljótt og hinum vigfúsunum... en á endanum var hann dreginn inn, enda flúðir að nálgast og vissara að hafa guide með í ferð...
kíktum á köngullærnar... og við erum að tala um HUGES kvikindi sem hafa það gott þarna við ánna...
guidinn reyndi að flippa bátnum... vigfúsar högguðust ekki... nema miss laugaskóli sem flaug... en guidinn greyp í hnakkadrambið á henni og sá til þess að hún færi ekki á trýnið ofan í ánna...
fengum náttúrulegt swiss miss... best í heimi... ekkert gott heima en voða gott við ánna...
heiða missti sjónina... en blindir fá sýn eins og maðurinn sagði og fékk hún því sýn og stöð 2 + ... nei djók hún fékk sjónina aftur og gat haldið áfram með okkur...
girðingarvinnan rennblotnaði... enginn pissaði á sig nema danski gæjinn.. honum var kalt og ætlaði að fá sér skammgóðan vermi...
VIGFÚS STEFNIR Á AUSTARI JÖKULSÁ Í ÁGÚST!!!!
er eitthvað að gleymast???
IT IS THE FINAL COUNTDOWN....
4 DAGAR Í RAFTING!!!
HVERJIR ERU AÐ FARA??
STIMPLIÐ YKKUR INN SNÚÐARNIR YKKAR!!!
VINDBELGUR, HVERFJALL, JARÐBÖÐIN OG G-STRENGURINN
loksins kemur ferðasagan... hef heyrt að fólk sé farið að bíða með óþreyju eftir henni... aumingja þið að hafa misst af the ferð sumarsins... án nokkurs efa besta ferð vigfúsar hingað til!!!! án þess að hinar hafi verið slæmar
það var spólað af stað í tveimur bæjarfélögum um kl 15:30 í gær 30.júlí... nánar tiltekið frá húsavík og akureyri...
eitthvað villtist húsvíkingurinn á leiðinni og endaði heima hjá gamla kallinum í Belg sem ég man ekki alveg hvað heitir í augnablikinu... gamli vildi ekki kannast við að vigfús ætlaði upp á sig en bauð húsvíkingnum í kaffi...og með því... en aðallega með þvi...
akureyringarnir mættu og voru farnar að hafa áhyggjur af Hvíkingi... þegar HV hringdi til að ath hvort við ætluðum ekki að fara að koma til kallsins... þá leiðréttist sá misskilningur að við ætluðum ekkert á neinn kall á Vindbelgi heldur ætluðum við á fjallið vindbelg... þannig að Hvíkingurinn laumaði sér bakdyramegin út og spólaði í átt til fjallsins...
eftir að hafa dáðst af óspilltri náttúrufegurðinni ákvað húsvíkingurinn að spilla náttúrunni með því að spræna yfir runna eins og garðúðari... það vildi nú ekki betur til en svo að þá birtust útlendingar... skælbrosandi feðgar á ferð... í þröngum buxum... eitthvað varð einn vigfúsinn (þessi sem sprændi) seinn af stað og þegar hinir litu við leit út eins og hún væri að taka mynd af bakhlutanum á þeim yngri... seki vigfúsinn bar fyrir sig að vera ekki með myndavél heldur sár undir hendinn sem hún hefði verið að skoða en kom út eins og myndataka.... dæmi hver fyrir sig... en sagan er góð
þaðan var skundað upp á fjallið og tók það ekki nema í mesta lagi 60 mín, enda fólk í fantaformi þar á ferð... alveg í fjallgöngu gírnum... bara ein stika enn og svo pása...og svo næsta stika.. á endanum voru engar stikur eftir og toppnum náð...
hitinn var svo gífurlegur að það voru regluleg stopp til að fækka fötum og voru sumir limirnir orðnir ansi fatalausir í restina... nefnum engin nöfn en sandra var komin á belginn... en því miður gleymdist alveg að taka myndir af því æjæjæ
lengi stoppað uppi á fjallinu til að njóta útsýnisins og taka myndir... mestur tími fór þó í það að leita að öskju á kortin þar sem meðlimir voru með fingurinn ofan á því og því fannst það ekki... dahh
ferðir næsta sumars planaðar enda hvergi betra að plana svona en uppi á fjalli, í roki, með kort og útsýni yfir fjallaparadísina... Herðubreið er komin á listann... með Öskju... jafnvel bláfjall líka...
reyndar fór nokkuð langur tími í það að taka myndir því allir vildu limirnir vera með á myndinni... en vigfús group fer sennilega að setja íslandsmet í sjálfsmyndatökum.. og það bara nokkuð góðum... kannski fyrir utan söndru og heiðu sem reyndu að mynda sig með kortinu góða.... það þurfti nokkuð margar tilraunir eins og sjá má í myndaalbúminu... heheh
eftir það var brunað niður af belg með vinafólkinu og tilheyrandi grjóthruni og skriðum... ansi oft voru vigfúsarnir heppnir að öklabrjóta sig ekki eða lenda á trýninu á kaf í runna... hefði nu verið kodak moment ef það hefði gerst...hahahahhah kannski næst... var það akureyrski íþróttaálfurinn sem sýndi fanta góða takta við að tala við fúsana fyrir aftan sig og sparka í risa rót í leiðinni.. þar var tekið íþróttálfshopp með tilheyrandi og fokk shitt og því öllu...
Kolla mætti með flugnaútbúnað að hætti heimamanna (sjá myndir) og var þvi laus við flugurnar... hinir limirnir átu þær í gríð og erg og spöruðu sér þar með nestiskaup.. enieni bara grín... það var lítið af flugu... á fjallinu
lokurnar voru með í för eins og í hinum vigfúsarferðunum enda er engin ferð án nestis...og var sett íslandsmet í kappaáti við rætur vindbelgs... það var bara að éta eða vera étinn... þar voru flugurnar sko heldur betur...
næst lá leiðin á Hverfjall... sem var nú ekki lengi gert en samt gaman að hafa komið þangað... þegar þangað var komið var farið að kvölda aðeins og gaman að sjá sveitina í kvöldsólinni..
forsíðumyndin er tekin af félaga okkar útlendinginum á hverfjalli... helvíti fín mynd hjá kallinum held ég...
af hverfjalli mátti sjá annan hluta sveitarinnar en af vindbelg... og bættist námafjall á todo listann... ætli það verði ekki verkefni haustsins... jafnvel þáttur í uppskeruhátiðar vigfúsar sem fram fer í helluhrauni 10... nánar auglýst síðar..
Heiða sýndi okkur tilvonandi heimili sitt... en leist samt nokkuð vel á annað hús í sveitinni.. já húsið sem sandra var búin að grínast með i allt sumar að hún fengi... og til að toppa það sáum við líka íbúann sem sandra var líka búin að stríða henni á að myndi fylgja húsinu hahahahh meina einn með öllu... hús, hund og hest.. hvað meira getur kona óskað sér.... já oki kannski að maðurinn væir 40 árum yngri... maður fær bara ekki allt sem maður vill...
þaðan lá leiðin í jarðböðin sem höfðu sést í hyllingum þennan dag... þar var mikið að HHP fólki sem gjörsamlega magaspeglaði hvert annað þarna og var okkur félögunum nóg boðið annars lagið... stundum var þetta svo mikið að við hreinlega urðum að líta undan... vorum farnar að halda að yfirborð lónsins myndi fara hækkandi vegna mikillar slef framleiðslu paranna...jakk
annars var lónið bara hlítt og notalegt, heiða splæsti í árskort og ætlar að stunda lónið stíft á komandi mánuðum á milli þess sem hún fer yfir stærðfræði heimadæmi og próf... heimadæmin verða alltaf á þri og fim svo heiða hafi eitthvað að gera á kvöldin... og svo próf á hverjum föstudegi svo henni leiðist ekki um helgar...
... sandra fann sér góðan stein og sat eins og froskur á honum í græna bikininu... á meðan heiða gubbaði yfir ástföngu gömlu hjónunum og kolla varð ástfangin af kallinum í G-strengnum... hahah oki næstum því G... þetta hefur verið svona E strengur held ég... amk sáum við bara aftan á hann til að byrja með og kolla hrópaði: " snúðu þér við, snúen sie bitte við for helveded"... en gæjinn sneri bara baki í okkur þangað til hann vippaði sér upp á bakkann... say no more... en svona efnislitlar skýlur hafa ekki sést á eyjafjarðarsvæðinu í sumar....
óheppin þið að missa af ferðinni
næsta ferð vigfúsar er líklega rafting 9. ágúst kl 13:30... áætluð brottför frá eyrinni er kl 12 á hádegi... þeas ef sandra getur glennt upp glirnurnar eftir hressandi næturvakt... eftir raftin er áætlað að fara út að borða á 5 stjörnu veitingastaðinn sem ég man ekki hvað heitir.. en kallast í daglegu tali sjoppan í varmahlíð... þaðan verður ekið eins og druslan dregur í grettislaug... ekki snorralaug eins og höfundur laug að móður sinni fyrir nokkrum sek... og þar verða teknar nektarmyndir af limum vigfúsar... fyrirhugað er að setja myndirnar á dagatal til styrktar ferðum næsta sumars hjá vigfúsi...
heyrst hefur að
Kolbrún ætli að láta hlírana falla á sundbolnum....
Aðalheiður ætli að hlaupa nakin í móunum í kring... og að
Sandra sé í gymminu að styrkja rassinn fyrir komandi myndatökur...
enn er laust í þessa dásamlegu ferð...
kveðja
Vigfús group...
http://picasaweb.google.com/sandraljoska/MyvoferdVigfusar
myndir úr ferðinni mættar á veraldarvefinn... enjoy
Mývódagurinn
Vindbelgur, Hverfjall og Jarðböðin. Hver talar svo um gullna þríhyrninginn fyrir sunnan, þessi er sko ekkert síðri
Treysti svo á að Sandra skelli inn ferðasögunni, ýki hana jafnvel aðeins hehe segi bara svona...
spáið í því
Á Mývatnsöræfum, rétt vestan Jökulsár á Fjöllum og örskammt sunnan þjóðvegar, þar sem leiðin liggur suður í Herðubreiðarlindir, Dyngjufjöll og Kverkfjöll, er annar gígur af sömu tegund, Hrossaborg. Hann er u.þ.b. 10.000 ára og mestallt laust efni hans skolaðist brott í hamfarahlaupum Jökulsár fyrir 8000-10.000 og 3000 árum, þegar gljúfur árinnar og Ásbyrgi mynduðust.
Skemmtileg gönguleið liggur í gegnum Dimmuborgir að og upp á Hverfjall og frá því um úfið hraun frá 1875 til Grjótagjár. Einnig er skemmtilegt að ganga frá Hverfjalli með hlíðum Námafjalls að Hverarönd.
og
Vindbelgur eða Belgjarfjall er móbergshryggur (529 m) og hefur myndast í gosi undir jökli sem ekki hefur náð upp úr jöklinum . Vindbelgur rís norðan við Mývatn. Það liggur gönguleið upp á Vindbelg sem hefst við veginn sunnan við bæinn Vagnbrekku. Þessi gönguleið er ekki svo erfið en nokkuð brött og er þetta um tveggja tíma ganga. Á leið upp á Vindbelg blasir Sandvatn við. Þegar komið er upp á toppinn er mjög gott útsýni út yfir Mývatn og Mývatnssveit.
MÝVATNSGLEÐI
HVENÆR?
31. JÚLÍ
HVERT?
VINDBELGUR, HVERFJALL OG JARÐBÖÐIN ( KANNSKI ÍS Í BÚÐINNI EF ÞAÐ VERÐUR OPIÐ)
AFHVERJU?
AFHVERJU EKKI? OG ÞAÐ ER BARA GAMAN
KOMA MEÐ?
LOKU AÐ HÆTTI VIGFÚSAR, KÍKI? MYNDAVÉL, GOTT SKAP, 2 SUNDBOLI OG 1 BIKINI, HANDKLÆÐI
KLUKKAN?
16:05 FRÁ AKUREYRI OG HÚSAVÍK
HVERJIR?
JAHH ÞAÐ ER STÓRA SPURNINGIN...
STIMPLUM OKKUR INN


