AFREK VIGFÚSAR

# HRAUNSVATN 2007
# VINDBELGUR 2007
# HVERFJALL 2007
# RAFTING VESTARI JÖKULSÁ 2007
# HVALASKOÐUN 2007
# JARÐBÖÐIN X 2 2007
# VÖFFLUKAFFI HJÁ HEIÐU Í MÝVÓ 2007
# BLÁA LÓNIÐ 2007
# kEILA 2007
# KOLAPORTIÐ 2007
# HITTINGUR Í BORGINI, ÚT AÐ BORÐA OG FL 2007

Auglýsing

NÆST Á DAGSKRÁ

Næst á dagskrá VIGFÚSAR GROUP eru:

# Hraunsvatn 26. júní....## BÚIÐ##
# Hvalaskoðun 2.júlí...... ##BÚIÐ##
# Vindbelgur 30. júlí.......##BÚIÐ##
# Hverfjall 30. júlí............##BÚIÐ##
# Jarðböðin 30. júlí.........##BÚIÐ##
# Rafting í V- Jökuslá ...##BÚIÐ##
# RVK . hittingur ..........##BÚIÐ##
# Vöfflukaffi í Mýv ........##BÚIÐ##
# ÞEMAPartý
# Spilakvöld
# Súlur
# Saumaklúbbur
# Rafting í A- Jökulsá
# Brettakennsla í Hlíðarfjalli
# Skíði
# Slægjuball í Mýv
#Uppskeruhátið/Aðalfundur

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

EIGUM VIÐ EITTHVAÐ AÐ RÆÐA ÞAÐ?

13. janúar 2008 klukkan 00:24
Vigfús fær sennilega ekki stig fyrir duglegheit í blogginu...

en svo sannarlega kominn tími á uppgjör... já nú er komið að því að gera árið upp... rólegar það skuldar enginn neitt... ég er að tala um að fara yfir atburði ársins 2007... hvað stóð uppúr og hver á skilið verðlaun...

# HRAUNSVATN 2007
# VINDBELGUR 2007
# HVERFJALL 2007
# RAFTING VESTARI JÖKULSÁ 2007
# HVALASKOÐUN 2007
# JARÐBÖÐIN X 2 2007
# VÖFFLUKAFFI HJÁ HEIÐU Í MÝVÓ 2007
# BLÁA LÓNIÐ 2007
# KEILA 2007
# KOLAPORTIÐ 2007
# HITTINGUR Í BORGINNI, ÚT AÐ BORÐA OG FL 2007

Allir Vigfúsar mega vera stoltir af árinu 2007 sem fór fram úr vonum flestra :)


Ég vil byrja á því að hrósa Heiðu fyrir góðan klæðnað í Rafting... þar sem allir áttu að taka hana til fyrirmyndar... klapp klapp við hinar getum reynt að muna átfittið fyrir næstu ferð...
Og að því tilefni fær Heiða verðlaunin 66°N Fúsinn :)

Einnig á Heiða skilið verðlaunin... besta mætingin... enda var hún með 100% mætingu í allt sem gert var... enda kannski ekki skrýtið þar sem hún er kennari og krefst 100% mætingar af nemendum sínum...
fyrir það fær Heiða titilinn FyrirmyndarFúsinn

Kolla beit á jaxlinn og lét sig hafa það að strunsa upp á Vindbelg nær dauða en lífi í bakinu... það er mikið á sig langt til að klífa fjöll undir nafni Vigfúsar...
Verðlaunin fyrir það eru nafnbótin FjallaFúsinn

Ingunn var öll af vilja gerð til að vera meðlimur Fúsa... var bara dáltið busy

Hrafnhildur heldur nafnbótinni Heiðursfélaginn enda fengu engir aðrir jólagjöf frá hinum eina sanna og hvað þá áritað jólakort.
Hrafnhildur er HeiðursFúsinn

Edda kom sterk inn í til leiks seint á árinu... en hún sannaði sig sem afburðaFúsi í keilu...Edda ætlar að gera góða hluti á þessu ári
Edda er KeiluFúsinn

Svo eru nokkrir GestaFúsar... en þeir fá engin verðlaun :) nema þá kannski bara heiðurinn af því að hafa fengið að ferðast með okkur...

Sandra á engin verðlaun skilið :(

Aðalfundur Fúsa verður haldinn í Febrúar! OK?
þar sem ferðir 2008 verða ræddar fram og til baka...
hugmynd kom frá ónefndum aðila að þessi fundur færi fram á hlutlausum stað, helst stað sem nefnist Greifinn þannig að fólk fari ekki að ræða gönguferðir á fastandi maga... það er ekki gott


Allar hugmyndir að fleiri verðlaunum og nafnbótum eru vel þegnar...

Allar athugasemdir og tillögur í sambandi við aðalfund eru einnig vel þegnar

öllum hugmyndum athugasemdum og tillögum  má skila hér í commentakerfinu.... einnig fá allir vigfúsar heimild til að update-a þetta blogg og bæta inn tilnefningum og öðru slíku...

VIÐ ERUM AÐ FARA Í FJALLIÐ

22. nóvember 2007 klukkan 19:41

ÆTLARU AÐ MÆTA Á SKÍÐI/BRETTI MEÐ FÚSA Í VETUR?

SKÍÐI SMÍÐI, BRETTI SKRETTI ( 0% / 0 atkvæði )
ÞOKKALEGA, ER AÐ ÆFA MIG Í STOFUNNI HEIMA ( 0% / 0 atkvæði )
NAUTS, ÞAÐ ER SVO KALT ( 0% / 0 atkvæði )
NEE ER UPPTEKIN ÞÁ ( 0% / 0 atkvæði )
GET EKKI BEÐIÐ :) ( 29% / 2 atkvæði )
SWWOOOOB, SWOOOOB, SWWWOOOB (þeir sem fatta ekki ættu að horfa á friends) ( 29% / 2 atkvæði )
LANGAR OBBOSSLEGA EN ER EKKI VIGFUS :( ( 14% / 1 atkvæði )
HVAÐ UM AÐ FARA FREKAR Í SNJÓHÚSAKEPPNI.. ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT ( 29% / 2 atkvæði )

? HVORT ÞESSI SEM ER EKKI VIGFÚS VERÐI BARA VIGFÚS? BARA SENDA MAIL Á STJÓRNARMEÐLIMI...
ÞEIR SEM VILJA EKKI FARA Á BRETTI GETA ÞÁ BARA BÚIÐ TIL SNJÓHÚS

GLÆSI ÞÁTTTAKA BARA

Í TILEFNI DAGSINS

22. nóvember 2007 klukkan 18:56
fannst mér við hæfi að henda inn bloggi...


hvernig lýst ykkur á það að við fúsarnir myndum halda "litlu jól" saman...

hugmyndin sem var að fæðast...12 merkur og 50 cm ... já, gekk vel og allt það, er sú að við myndum :

elda einn hryggan hammara...
þeas hamborgarahrygg en ekki skælandi hamborgara... brúnaðar töflur, salat og tilheyrandi
ekki má gleyma malt og appelsín

kannski einhvern meinhollan eftirrétt sem gæti innihaldið
ís, kókosbollur og marengs með marssósu

kertaljósum og máli málanna... pökkum

svo er aldrei að vita nema einhver duglegur verði búin að sletta í sykurhnullunga aka smákökur eða steikja laufabrauð...

og jafnvel leggja lokahönd á heklaðar jólagjafir...

er einhver game? eða eru allir leim?
hvernig hljómar 17. desember???

SJÓÐANDI HEITAR NIÐURSTÖÐUR...

23. október 2007 klukkan 13:17

Á VIGFÚS AÐ LIFA?

JÁ, AUÐVITAÐ, ÁN HANS GERI ÉG EKKERT ( 25% / 1 atkvæði )
NEI, ÉG ER ORÐIN ÞREYTT Á ÞESSU ( 0% / 0 atkvæði )
DREPUM THE MAN... MUHAHAHA ( 0% / 0 atkvæði )
HÖLDUM AÐALFUND OG KJÓSUM NÝJA STJÓRN ( 0% / 0 atkvæði )
STYRKJUM FÚSANN OKKAR Í STAÐ ÞESS AÐ DREPA HANN ( 75% / 3 atkvæði )
ANNAÐ ( 0% / 0 atkvæði )


SAMKVÆMT ÞESSU VILJA ALLIR (ÞRÁTT FYRIR AÐ ALLIR FÚSAR HAFI EKKI KOSIÐ) HALDA LÍFI Í FÚSANUM OKKAR...

HVERNIG VÆRI AÐ ÞIÐ FÆRUÐ AÐ HENDA INN HUGMYNDUM UM HVAÐ ÞIÐ VILJIÐ AÐ VIGFÚS GERI Í VETUR??

ALLAR HUGMYNDIR VERÐA TEKNAR TIL SKOÐUNAR... (nema þær sem innihalda nekt)

STJÓRNIN


ALLT AÐ VERÐA VITLAUST... já fínt, já sæll, já fínt já sæll já fínt..

08. október 2007 klukkan 20:06
jæja enginn er tilbúinn að taka þá ákvörðun að Vigfús fari á líknandi meðferð... þannig að hann verður áfram á FM þeas fullri meðferð sem inniheldur endurlífgun ef að því kemur...

1000 kr eru boðnar þeim sem er tilbúinn að beita munn við munn aðferðinni á hinum eina sanna...
hvern vantar ekki pening... amk þegar maður hefur séð vítamín auglýsingarnar hjá vörutorgi...

nú er komið að því sem eflaust allir hafa beðið eftir...

AÐALFUNDUR/UPPSKERUHÁTÍÐ

stefnan er sett á að hafa aðalfund föstudaginn 26.október

staðsetning er ekki komin á hreint... en hugmyndir óskast... hugmyndir sem eru komnar eru: greifinn, la vita e bella, bautinn, Selið og heimahús

kosið verður í stjórn félagsins... nýjan formann (ekki georg samt), gjaldkera (enda miklir fjármunir sem fara í gegnum félagið) ritara (? um að ráða rithöfund), meðstjórnendur og formann sóknarnefndar... ekki verður kosið um heiðursfélaga að svo stöddu þar sem enginn kemur til greina nema Hrafnhildur...

einnig verður rætt um vetrarstarf vigfúsar hvað verður gert og hvað fólk vill gera...

einnig verða settar fram tillögur fyrir ferðasumarið 2008...

rætt verður einnig um ferð til svíþjóðar...

og svo verða önnur aðalfundarstörf...

spurning hvort það verði verðlaunaafhending? ekki alveg komið á hreint...

en fólk hefur verið að sakna emils... en hann var tekinn út eftir að barnaverndarnefndin í mývantssveit komst á síðuna í skólanum og sá djásnið... þannig að við hvílum hann í smá stund svona rétt á meðan upþotið í sveitinni er að gleymast... það verður fljótlega eftir slægjuball sennilega ef ég þekki heimamenn rétt :)

eigum við eitthvað að ræða það???

VIGFÚS DAUÐUR?

02. október 2007 klukkan 13:23
ætla að byrja að þakka vigfúsum fyrir hittinginn í borginni....

hann var mishress...

kolaportið var hressandi... alltaf gott að koma þangað... þá virkilega veit maður hvað maður hefur það gott... músíkin var hress í portinu.. ekki mikið sem mann langaði til að verlsa en harðfiskurinn stendur alltaf fyrir sínu

lunch í kringlunni var nokkuð gott bara... serrano klikkar sjaldan eða aldrei..

hvað er meira hressandi en að kíkja í smáralind þegar búið er að kíkja í kringluna heheh

lónið var awsome... alltaf gott að svamla í bláa lóninu þó ég sé farin að hallast að þvi að jarðböðin séu betri.. en það sannar jú heima er best máltækið...

verð nú sam að segja að maturinn á deco var ekkert til að hrópa húrra fyrir, skemmtiatriðið ekki alveg nógu gott... gæjinn sem steig á lærið á mér til að sína skóna fær ekkert stig

keilan var nokkuð góð bara... spurning um að fara aftur þangað að ári... miklir taktar og fínar sveiflur hjá félagsmönnum...

svo var það bara rúnturinn....hjá flestum.. aðrir keiluðu meira....







en hvernig er það?

* er áhugi fyrir að halda lífi í Vigfúsi áfram?
* er áhugi fyrir einhverri vetrarferð?
* ætlar einhver á uppskeruhátið?
* Eigum  við kannski að jarða Fúsa?
* spurning um að halda aðalfund...
* amk þarf að bæta móralinn... ekkert skítkast hér lengur!!!!


kv sandra æðstistrumpur



kvittið snúðarnir ykkar...
ekkert kvitt = engin skoðun = ekkert framhald

PLANIÐ Í BORG ÓTTANS

11. september 2007 klukkan 15:40
PLANIÐ Í BORG ÓTTANS ER SVONA, OG ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ BREYTA ÞVÍ ....

LAUGARDAGURINN 22.SEPTEMBER 2007

KL 16:00 FARIÐ Í BLÁA LÓNIÐ
KL 20:00 ÚT AÐ BORÐA Á (sjá könnun)
KL 21:30 KEILA Í KEILUHÖLLINNI
KL 00:00 LITIÐ Á MANNLÍFIÐ Í BORGINNI
KL 06:00 KOMIÐ VIÐ Á HLÖLLABÁTUM Á LEIÐINNI HEIM


HEFUR EINHVER EITTHVAÐ UM ÞETTA AÐ SEGJA?

NEI STIMPLIÐ YKKUR ÞÁ INN SNÚÐARNIR YKKAR!

svo á eftir að finna dagsetningar fyrir:
esjuna
skvass
kolaportið
og eitthvað fleira sem ég man ekki í augnablikinu

LÖNGU TÍMABÆR GIRÐINGARVINNA

05. september 2007 klukkan 13:50
jæja vigfúsar... nú er komið að því að girða sig í brók... ja g-strengir bannaðir... þeir sem kunna ekki að girða sig geta fengið girðingarkennslu á hlíð á hverjum mánudegi milli 8:00 og 9:30

þar sem það var hópbeil um síðustu helgi hefur verið ákveðið að leggja ekki upp laupana heldur girða mannskapinn... viljum engar buxnalausar gærur hér... já ÚT MEÐ GÆRUNA... í brók...

þar sem 90% skráðra vigfúsa verða staðsettir í borg óttans 18.sept til 28.sept og hin 10% eru tilbúin að leggja land undir fót og sameinast hinum %.

helstu hugmyndir um vigfúsarferð í borginni eru:

borða, borða,borða...

fara í bláa lónið

fara i keilu

fara í kringluna

fara í smáralind

fara í kolaportið að kaupa lakkrís og harðfisk

partý á dúfnahólum 10, 9h th

feitt djamm

hannyrðakvöld þar sem harðangur og klaust(ur)? verður kennt


allir að koma með (betri) hugmyndir

KOMA SVO VIGFÚSAR!!!!!!

NÝTT PLAN

30. ágúst 2007 klukkan 16:00
vegna lítillar skráningar fellur rafting ferðin niður... ég er ekki ánægð með ykkur vigfúsarnir ykkar!!!!

en í staðinn hefur verið soðin saman ný vigfúsarferð sem kostar minni pening en sú sem plönuð var...

DAGUR: LAUGARDAGUR
NÚMER: 1
MÁNUÐUR: SEPTEMBER
KLUKKAN HVAÐ: ? EINHVERJAR HUGMYNDIR?
HVERT: MÝVATNSSVEIT
GERA HVAÐ? HITTA HEIÐU, FARA Í JARÐBÖÐIN, GANGA Á NÁMAFJALL, KÍKJA Á HESTANA HENNAR HILDAR, KANNSKI GRÍPA Í EITT RAPID DOUGH SPIL OG.....
LOKA: AÐ ÞESSU SINNI VERÐA EKKI LOKUR MEÐ Í FERÐ ÞVÍ HEIÐA ÆTLAR AÐ RÆSA VÖFFLUJÁRNIÐ OG SLETTA Á ÞAÐ HANDA OKKUR... SPURNING HVORT VIÐ VERÐUM EKKI AÐ KOMA MEÐ RJÓMA, ER EKKI VISS UM AÐ ÞAÐ SÉ TIL Í SVEITINNI HEHEHEHEHE
HVERJIR: ????

HEYRST HEFUR AÐ 2 NÝJIR VIGFÚSAR VERÐI MEÐ Í FERÐ...... BÍÐUM SPENNT EFTIR STIMPLI

STIMPLUM OKKUR INN

KV NEFNDIN...

RAFTING EÐA HVAÐ!!!

27. ágúst 2007 klukkan 03:28

Jæja mínir kæru félagar

Nú er ég búin að hafa samband við Kötju vinkonu mína í raftinginu og það er fyrirhuguð ferð þann stórgóða dag 1 sept. Hún gerir ráð fyrir okkur en vill fá endanlega tölu í tíma. Mér til mikillar harmkvæla er öngvir búnir að stimpla sig nema ég og sandra, auðvitað aðalstuðboltarnir hehe. Þið sem viljið koma með viljiði plís stimpla ykkur inn sem fyrst svo ég geti þóknast þessari nýju stórvinkonu minni. Fyrir þá sem ekki vita en sjá síðu Vigfúsar Group þá eru allir velkomnir í ferðina þrátt fyrir að hafa ekki tekið inntökupróf Söndru einkaþjálfara;o) það verða jú hjúkkur með í för sem geta bjargað hjartastoppi og öðrum kvillum sem gætu komið upp. Þetta gildir auðvitað líka fyrir okkar stórgóðu bekkjarsystur sem eru auðvitað stuðboltar upp til hópa. Sérstaklega mana ég Karó og Rebekku í að vera með í för. Sérstakt komment hér er..... Elín Gestur Vigfús Hansen, ætlarðu ekki örugglega með???? Þetta er einstakt tækifæri til að vera í frábærum félagsskap (þe er aðallega ég og Sandra sko) og upplifa geggjaða reynslu.
Stimpl þarf að vera komið fyrir miðnætti á miðvikudag.

Sí jú gæs, og munið einnota vatnsheld myndavél er velkomin í ferðina;o)

KV
Kolla Vigfús

Könnun

HVAÐA DAGUR HENTAR ÞÉR BEST?

The bóld and the Bjútífúl

UM VIGFÚS

  • Nafn: vigfús
  • Staður: AFHVERJUEYRI
  • Atvinna: AÐALLEGA Á HLÍÐ
  • Hjúskaparstaða: HVURSLAGS FORVITNI ER ÞETTA....í hvaða meðlim ertu að spá... *blikk blikk*
  • Um mig: VIGFÚS ER FÉLAG ÁHUGAMANNA UM HÆGÐIR OG LÆGÐIR.... MARKMIÐ FÉLAGSINS ER AÐ HAFA GAMAN AF LÍFINU OG SKEMMTA OKKUR SEM MEST Á SEM MINNSTUM TÍMA...
  • Annað: VILTU VERÐA VIGFÚS??? ENDILEGA HAFIÐ SAMBAND OG FYLLIÐ ÚT EYÐUBLAÐ

Klukkan